miðvikudagur, júní 08, 2005

Blogspot sýgur feitustu og sveittustu hrútspunga í heimi!!!!!

föstudagur, maí 20, 2005

Teenage He-Man Ninja Turtles

Ég var að ganga frá inni á barnabiðstofu í vinnunni og þar sem sjónvarpið var stillt á Stöð 2. Fyrst sá ég að He-Man var að ljúka. Þetta voru nýir þættir, það sást á animationinu. Síðan byrjaði Teenage Mutant Ninja Turtles. Mér finnst það stór skringilegt að þeir geti ekki fundið upp eitthvað nýtt. Áður en maður veit af þá fara þeir að gera nýja Transformers þætti án flogaveikisvaldandi ljósasjóvin? Who knows? Who cares?

mánudagur, maí 16, 2005

THGTG

Fór í bíó í gær og sá the hitchhikers guide to the galaxy og skemmti mér bara konunglega. Vel framleidd mynd í nær allan stað. Verð samt að segja að mér fannst ekki nógu vel castað í myndina. Eða einn karakter var illa castaður. Annars fannst mér hún vel heppnuð og skemmtileg og gef henni hiklaust 3 stjörnur og hefði jafnvel bætt hálfri í viðbót ef ég væri í betra skapi og með smá heilablæðingu. Er nú ekkert í vondu skapi en það verður að teljast með að ég er í vinnunni.

sunnudagur, maí 15, 2005

We the children of city zoo

Ég komst að nokkuð merkilegri niðurstöðu í gær þegar ég var að ganga heiman frá Arnaldi að Cafe Cultura (Alþjóðahúsið). Þegar ég nálgaðist Bankastrætið þá leið mér meir og meir eins og ég væri að nálgast dýragarði. Þegar ég var að koma að enda Þingholtsstrætis þá leið mér eins og Bankastræti/Laugarvegur væri hreinlega apahúsið í dýragarðinum í Kaupmannahöfn. Ég hef nú lengi verið á þeirri skoðun að íslenskt skemmtanalíf sé eins og einhverskonar dýragarður og ég held að bræður okkar simpansar séu hin besta samlíking.

Ég verð að fara að hætta að nota blogspot. Þetta er crap kerfi!

miðvikudagur, maí 11, 2005

Guten Tag!

Geirharður bloggar í fyrsta sinn: aQQQQQQQÞEÆ
R´W

Þetta voru nú aldeilis fín skilaboð.

Já þá er þinginu lokið og þingmenn komnir í nær 5 mánaða frí, helvítis durtir! Allt vegna þess að í gamla daga þurftu allir þingmenn að fara í heyskap og smölun. Kannski fóru þeir líka í sauðburðinn, en það virðist vera dottið upp fyrir. Þeir væla undan því að þeir fá ekki nein svaka góð laun og vilja ekki að kennarar fái betri laun vegna þess að þeir fara í svo langt sumarfrí og síðan eru þeir í 5 mánaða sumarfríi og 2 mánaða jólafríi. Those bastards!!!!

Ég er enn með opið sár í rassinum. Þetta stafar af því að ég veit ekki. Ég bara skil ekki afhverju ég er svona lengi að græða eitt sár (það er að segja líkaminn ekki hugurinn). Það eru liðnar sex vikur síðan ég fór í þessa aðgerð, að mig minnir. Þórir Njálsson, sá sem gerði aðgerðina, segir að þetta líti allt gott og blessað út og að ég sé bara eins og kallað er á ensku a slow healer. This totally sucks donkey balls.

Ég held að ég hafi sjalda verið jafn latur í lestri og núna. Fyrir einhverju, frekar langt síðan, las ég Generation X eftir Douglas Coupland og síðan hóf ég lestri á Al-Jazzera og þó svo að hún sé rúmar 400 bls. þá hef ég ekkert lesið í millitíðinni og á meira að segja 2 kafla eftir. Ég er bara ekki að meika neitt hvað varðar lesningu þessa daganna. Er hálfnaður með Lömuðu kennslukonurnar eftir Guðberg og get varla drullað mér í að halda áfram og er einnig byrjaður að lesa Töframaðurinn frá Lúblín eftir Singer og get ekki hugsað mér að taka hana upp. Mig langar til að klára þessar bækur og þær eru allar mjög áhugaverðar og skemmtilegar að lesa, en allt kemur fyrir ekki og uppi sit ég með 3 ókláraðar bækur.

Maður kemur inn á bar og segir: Má ég fá drykk. Þá svara barþjónninn: Já, hvað má bjóða þér herra minn. Maðurinn svarar: Bara, einn Víking úr krana takk fyrir. Barþjónninn svara: Það gera 500 kr. Maðurinn borgar, drekkur bjórinn og fer heim.

laugardagur, maí 07, 2005

Loksins búið

Í dag er lokasýning útskriftarnema úr LHÍ. Sýningin er á Kjarvalsstöðum og ég get varla lýst því hversu ánægður ég er að þessu sé lokið. Hún Áróra mín er loksins búinn í þessum skóla og ég þarf aldrei, vonandi, aftur að heyra eitthvað kjaftæði um þennan skóla eða Lindu, kennaran hennar. Það eina sem ég þarf að hlusta á seinna meir er einkunargjöfin. Ég er vitaskuld mjög stoltur af henni Áróru og glaður að hún hafi náð að ljúka þessu þrátt fyrir ýmist konar veseni sem hún og aðrir lentu í með stjórn skólans og geðsveiflum kennarans Lindu.

Maður kemur inn á bar og segir við barþjóninn: Ég ætla að fá einn hamborgara með osti. Barþjóninn gengur í burtu og fer að afgreiða annan kúnna. Þá fer sá hinn sami aftur upp að honum og segir: Ég ætla að fá einn hamborgara með osti. Barþjónninn lítur íllilega á hann og segir: Við erum ekki McDonald's, skilurðu það ekki?! Maðurinn fer og það sem leið af árinu kom hann á hverjum degi og bað um hamborgara með osti, sama og hann hafði gert alla vikuna á undan áður en sagan hófst. Þann 15. júní gekk barþjónninn loks af göflum og myrti hamborgaramanninn. Hann var úrskurðaður ósakhæfur vegna andlegsástands. Engin veit afhverju maðurinn hóf að áreita barþjóninn, sumir halda að þeir hafi þekkst, en engin gat þó staðfest það, þar sem barþjónninn hætti að tala eftir að hann stakk manninn með búrhnífi. Eftir dauða mannsins kom í ljós, eftir að menn komist í dagbækur hans, að maðurinn sem áreitti hann var ekkert tengdur manninum.

föstudagur, apríl 29, 2005

Geldur með æfingaakstur

Það er rétt! Ég er kominn með æfingaakstursleyfi og það er búið að gelda köttinn Geirharð. Ég get nú ekki sagt annað en að ég hafi verið með hræðilega mikið samviskubit yfir því að þurfa að láta gelda Geirharð, mér finnst satt best að segja frekar ógeðfelt að gelda dýr, mér finnst eiginlega betra að klippa á sáðrásina, en það er kannski bara of dýrt? Síðan er ég kominn í umferðina undir umsjón annarra manna. Þetta er allt gott og blessað.

Ég ætlaði að blogga í nótt, en vegna anna var það gjörsamlega ómögulegt. Helvítis deildin var full frá því ég mætti þangað til ég fór heim. Hreint út sagt óþolandi, engin vinnufriður og ekkert hægt að gera af viti. Djöfullinn hafi þessa hevlítis sjúklinga.

fimmtudagur, apríl 28, 2005

Iron Brogguru

Ég hef titlað sjálfan mig járn bloggarann. Ég blogga með járni!

Það er leitt að ég get ekki bloggað með reglulegra millibili. Þetta er aðallega vegna þess að ég hef ekki reglulegann aðgang að tölvu heima hjá mér og líka vegna þess að ég er svo sjaldan á næturvöktum þessa daganna. Ég hef því ákveðið að blogga í nótt og aðra nótt. Ég hef nú svo sem ekkert að segja nema að ég hef ákveðið að blogga á morgunn. Það gætu nú samt átt sér stað þátta skil í lífi mínu á morgunn þannig að það verður áhugavert að sjá hvort ég get skrifað eitthvað um það!

sunnudagur, apríl 24, 2005

Óregla

Ég hef sannfærst að undanförnu að líf óreglufólks og sérstaklega róna er málið! Það er svo margt sem þeir græða á því að vera í óreglu að maður veit ekki hvar skal byrja. Kannski er það einna helst Hótel Klambratún og Hótel Hilto Hljomskolagard sem er einn helsti lúxusinn. Síðan mætti líka segja að samveran og útveran geri þetta einkar heillandi lífsstíl, plús að þú færð að vera fullur alla daga og það allan daginn með öðrum sem eru í sömu stöðu. Ekki má gleyma hversu fyndnir þeir eru, en samt eru heimspekilegu samræðurnar eru þó sjaldan langt á undan. T.a.m. heyrði ég í tveimur þegar ég var að bíða eftir strætó í dag. Einn segir "Eru Papar ekki frá Akranesi?". Hinn segir "Nei! Paparnir eru frá Eyjum!". Þá mælir sá fyrri "Ótrúlegt! Ég hef haldið frá '98 að Papar væru frá Akranesi! Þetta er ótrúlegt!". Þá segir sá fyrri "Nei! Þeir eru frá Eyjum. Ég veit þetta vegna þess að ég er sjálfur frá Eyjum!". Samræðurnar eru svo líflegar og taka á öllum málum samfélagsins. Guð blessi þá!

Maður kemur inn á bar og segir við barþjónin "Ég þarf að fara á klósettið!". Barþjónninn segir við hann að klósettið sé óvirkt vegna þess að konan hans hafi dáið þar inni. Þá spyr maðurinn "Mér þykir það leitt. Hvenær gerðist það?". Bara rétt áðan þegar ég stakk hana í andlitið!!!! HAHAHAHAHAHAHHAHA

Blá höndin og græna rollan hafa tekið höndum saman og veitt Davíð Oddsyni heiðursnafnbótina Generalissimo fyrir stórburði í Mið-Ameríku stjórnarháttum! Lengi lifi Generalissimo Oddson!

þriðjudagur, apríl 12, 2005

Áfram heimilisofbeldi og kúgun kvenna!

Samkvæmt fjölmiðlum vesturlanda er fyrirsögn þessara færslu einkennisorð Arabaríkja. Þess vegna keypti ég bókina Al Jazeera eftir Hugh Miles. Þessi bók, eins og gefur til kynna á titlinum, fjallar um sjónvarpsstöðina Al Jazeera sem er eindæma vinsæl sjónvarpsstöð. Einnig hefur hún haft það orð á sér að vera handbendill Al Qaeda og Mossad. Í raun er þetta bombu góð fréttastöð með unuserfriendly en upplýsingagóða heimasíðu. Eitt þykir mér skemmtilegt og það er það að 120 starfsmenn Al Jazeera fengu alla sína þjálfun frá BBC. Þetta kom í kjölfar þess að BBC Arabia var lögð niður eftir að einhver prins í Saudi ættinni varð reiður og rifti samningnum við BBC. Ég er bara búinn að lesa innganginn og 1 kafla af 11. En ég er bjartsýnn á að þetta verði góð og upplýsandi lesning. Hér er einnig grein eftir Hugh Miles um Allawi og Al Jazeera(gömul grein).

Brandari vikunar: Maður kemur inn á bar og deyr.